nú dámar mér
Ósvikið bros - Kökubakstur í tilefni tveggja ára afmælis
Ómagar
Atli says:
"Ísland fær undanþágu frá samkomulagi sem gert er um greiðslur milli landa og greiðr ekki neitt, en tekur þátt í samstarfinu á jafnræðisgrundvelli."
Atli says:
algjör móðuharðindi
fáránleg gjafmildi hjá þjóðum sem við höfum leitast við að móðga og gera lítið úr í hálfan áratug
Atli says:
minnir svoldið á Garðstyrk á nítjándu öld
Atli says:
íslenskir stúdentar fengu forgang fram yfir danska
Atli says:
komu á kollegíið
Atli says:
drukku og hóruðust
Atli says:
ókeypis í boði konungs
auðugur says:
hahaha
auðugur says:
vel orðað
Atli says:
við höfum greinilega alltaf verið svona
Atli says:
vanþakklátir Íslendingar
Elsku Linnet litla - án þín væri lífið sviplaus auðn.

25
Surprise partý og leynimakk. Allt of rausnarlegar gjafir. Vel skammtað á diska og skenkt í glös.
Ekki leyndóÉg er ástfanginn
auðugur maður.
Leyndó
Ég er skotinn í Emilíönu Torrini.
helvítis fokking fokkað læra í tölvuverinu í árnagarði er eins og að reyna að einbeita sér á alþjóðaflugvelli.
Hvað er málið með Vesturbæinn og ketti?Hvað halda þeir að þeir fái heima hjá mér?
Bjór
Ég er orðinn að meiri bjórunnenda en ég hef verið um langt skeið eftir blindsmökkun með þeim Snorra og Trausta hér um kvöldið. Ég held hins vegar að blindsmökkunin sé ekki þess megnug að koma á
hlutlægum mælikvarða, eins og Trausti orðaði það þó upplifunin sé einlægari en þegar maður veit úr hvaða flösku veigarnar koma.
Although people are physical objects which, like atoms or ball bearings or bridges, obey the laws of physics, they are not only more complicated than anything else we know in the universe, they are also designed to be so sensitive to the passing show that they never can be in the same microstate twice. One doesn't even have to descend to the atomic level to establish this. People learn, and remember, and get bored, and shift their attention, and change their interests so incessantly, that it is good as infinitely unlikely that any person is ever in the same (gross) pshycological or cognitive state on two occasions. And this would be true even if we engeneered the surrounding environment to be "utterly the same" on different occasions - if only because the second time around the agent would no doubt think something that went unthought the first time like "Oh my, this all seems so utterly familiar; now what did I do las time?"- Reading Metaphysics, 156.
Ég hallast því að því að hver smökkun þurfi sinn skala, sem fer eftir því ástandi sem maður er í hverju sinni. Ég fékk mér nokkra bjóra um daginn og ætlaði að plata Ásgeir í smökkun. Hann komst ekki þannig að ég sat einn í dómnefnd. Drukknir voru þrír bjórar:
Fyrsta sæti:
Oxford Gold, England. - Alveg ágætur.
Annað sæti:
Warka, Pólland. - Einnig ágætur en ekki eins góður og sá fyrsti.
Þriðja sæti:
Yinjang (sic?), Kína. - Ekki eins ágætur.
Ásgeirs bíður hins vegar sá fjórði sem á uppruna sinn í Óríentinu (Belgíu reyndar), á flöskunni eru fílar, krókódílar og drekar og ber hið skemmtilega nafn
Delirium Tremens.
Kristinn ÁrmannssonÚr formála 1. útgáfu
.
...Áherzlu- og lengdrarmerki hafði ég gjarna viljað hafa víðar en gert er. En þar sem slíkt letur var ekki til hér á landi, varð að panta það frá útlöndum og urðu á því nokkur mistök vegna ófriðarins; verður það að vera til afsökunar nokkrum göllum á letri bókarinnar...Reykjavík, í maí 1940.Formáli 2. útgáfu.
Önnur útgáfa er nálega óbreytt. - Til hægðarauka nemendum hafa aftan við hvern flokk samhljóðastofna 3. no.beyg. verið settar aðalreglur um kyn þeirra. Þá hefir nýrri aths. 1 verið bætt aftan við 263. gr. Loks hafa skekkjur, sem fundist hafa, verið lagfærðar. Einari magister Jónssyni þakka ég ágæta aðstoð við prófarkalestur.Reykjavík, í ágúst 1945.Maður hlýtur óneitanlega að spyrja sig hvort Kristni Ármannssyni og Magistro Jónssyni hefði tekist ætlunarverk sitt ef ófriðurinn hefði farið á hinn veginn.
Án titilsÞað er víst betra að lúlla í pabbarúmi en sínu rúmi.
Long-lived trees make roots first
Ég tók mér frí frá lestrinum snöggvast og fór með Auði út í garð til þess að leika í snjónum. Við tróðum fönnina saman og gerðum snjóbolta. Því næst dró ég fram gömlu snjóþotuna mína og dró hana yfir snjóbreiðuna. Hún var alvarleg í fyrstu en varð síðar örugg og skemmti sér hið besta.
Að lokum fannst henni svo gaman úti að ég þurfti að múta henni með loforði um bláberjakökusneið til að komast aftur inn.